Styttist í flottustu brúðulistahátíð landsins

Alþjóðleg brúðulistahátíð Hvammstangi International Puppetry Festival eða HIP Fest fer fram dagana 8.-10. október næstkomandi. Þetta er í annað sinn sem hátíðin er haldin en von er á þriðja tug erlendra listamanna frá átta löndum sem bjóða upp á fjölda sýninga og vinnusmiðja, auk fyrirlestra og kvikmyndasýninga með umræðum við listamennina á eftir.

„HIP Fest er einstök viðbót í menningarlíf landsmanna, enda eina brúðulistahátíð landsins,“ segir í tilkynningu frá Handbendi – Brúðuleikhús núverandi Eyrarrósarhafa. HIP Fest var valinn menningarviðburður ársins á Norðurlandi vestra árið 2020.

„Þrátt fyrir verulegar samkomutakmarkanir á hátíðinni í fyrra tókst hún einstaklega vel við mikla ánægju þátttakenda og áhorfenda. Brúðulistin er fjölbreytt og fornt listform sem stöðugt haslar sér meiri völl í menningarlífi landsins. Á hátíðinni má líta fjölbreyttar sýningar fyrir alla aldurshópa, sem nýta sér öll blæbrigði listformsins,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

Miðasala fer fram á tix.is og dagskrá hátíðarinnar má gaumgæfa á heimasíðu hennar, thehipfest.com eða Facebooksíðu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir