Þorrablót Seyluhrepps í beinni í kvöld
Í kvöld, þorraþræl seinasta degi þorra, verður haldið rafrænt þorrablót íbúa fyrrum Seyluhrepps í Skagafirði og geta allir fengið að vera með. Útsending hefst klukkan 20 og ættu allir Skagfirðingar að sýna fyrirhyggju og vera búnir að mæta á kjörstað þá.
Blótinu verður streymt á YouTube á eftirfarandi slóð: https://www.youtube.com/watch?v=Guq_g78eN-s
Fleiri fréttir
-
,,Stekk á fólk í nýju prjónlesi og grátbið um nafnið á uppskriftinni,,
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 04.06.2023 kl. 14.42 klara@nyprent.isÍris Olga Lúðvíksdóttir býr í Flatatungu frammi á Kjálka með Einari sínum Gunnarssyni. Þau eiga þrjú og hálft uppkomið barn sem öll eru langt komin til manns, vel gerð og viti borin sem þau eru. Við búum með sauðfé, nokkur hross og þrjár tíkur og svo sinni ég uppfræðslu barna í framhéraðinu, er með starfsstöð í Varmahlíðarskóla.Meira -
Ríkidæmi þjóðar :: Áskorandapenninn Hörður Ríkharðsson Blönduósi
Mér finnst áberandi hve það kemur flatt upp á ýmsa nemendur mína þegar ég segi að Ísland sé í hópi ríkustu samfélaga í heimi. Sýni ég þeim gjarnan einhverja lista þar sem við kannski rólum í kringum fimmtánda sæti og eftir að búið er að taka út einhvers konar borgríki, sjálfstjórnarsvæði og jafnvel olíuríki með mikla sérstöðu blasir við að við erum á topp tíu ef ekki topp fimm meðal samfélaga sem við viljum bera okkur saman við þ.e. Vestræn lýðræðisríki. Ef litið er til samanburðar sem tekur til fleiri lífskjaraþátta heldur en tekna, þá komum við alla jafna nokkuð vel út þegar litið er til ungbarnadauða, lífaldurs, heilsu, jafnréttis, friðsældar, mannréttinda, menntunar o.fl. slíkra þáttaMeira -
Stefna ekki allir á að vera sexý á sjómannadagsballi í kvöld?
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Mannlíf 03.06.2023 kl. 11.41 oli@feykir.isKróksarar halda að venju snemma upp á sjómannadaginn og halda sína SjávarSælu í dag sem hefst með skemmtisiglingu nú um hádegið. Fjölskylduhátíð verður síðan á syðri bryggjunni frá klukkan eitt, hátíðarkvöldverður undir veislustjórn Gísla Einars í Síkinu í kvöld og ef það er ekki nógu sexý fyrir flesta þá mætir mister sexý sjálfur, Helgi Björns, ásamt fríðu föruneyti og heldur uppi fjöri eins og honum einum er lagið.Meira -
Snéru heim með fullt farteski af fróðleik, hugmyndum og innblæstri
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 03.06.2023 kl. 11.01 oli@feykir.isNú aðra vikuna í maí hélt fríður flokkur af landi brott í fimm daga reisu til Noregs. Það voru allt í allt 35 starfsmenn Byggðastofnunar og landshlutasamtakanna sem brugðu undir sig betri fætinum í þeim tilgangi að fræðast um stefnur og strauma, áherslur og verkefni annarra innan byggða-, atvinnu-, nýsköpunar- og atvinnumála. Þessir aðilar, þ.e. Byggðastofnun og landshlutasamtökin, fara reglulega í sameiginlegar náms- og kynnisferðir til nágrannalandanna. Feykir hafði samband við Ragnhildi Friðriksdóttur, sérfræðing á þróunarsviði Byggðastofnunar, sem hafði veg og vanda að því að skipuleggja ferðina ásamt samstarfsfólki sínu, og spurði aðeins út í ferðalagið.Meira -
Pavel áfram á Sauðárkróki
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Íþróttir, Vestur-Húnavatnssýsla 02.06.2023 kl. 18.03 palli@feykir.isGengið hefur verið frá samkomulagi um að Pavel Ermolinskij, sem nýlega leiddi Tindastól til frækilegs sigurs í Íslandsmótinu í körfubolta, verði áfram hjá félaginu. Um það var gerður samningur til tveggja ára og mun Pavel til viðbótar við meistaraflokkinn og Subway deildina einnig aðstoða með ýmsum hætti við unglingastarf Tindastóls bæði í karla og kvennaflokkum.Meira
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.