Tíminn flýgur :: Nýr diskur Guðmundar Ragnarssonar og Róberts Óttarssonar

Þríeykið sem gerði diskinn Tíminn flýgur. Róbert Óttarsson, Guðmundur Ragnarsson og Helgi Sæmundur Guðmundsson. Mynd: PF.
Þríeykið sem gerði diskinn Tíminn flýgur. Róbert Óttarsson, Guðmundur Ragnarsson og Helgi Sæmundur Guðmundsson. Mynd: PF.

Á dögunum kom út fimm laga geisladiskur Guðmundar Ragnarssonar og Róberts Óttarssonar á Sauðárkróki og fengu þeir félagar Úlf Úlfinn, Helga Sæmund, í lið með sér en hann sá um hljóðfæraleik, útsetningar og upptökur fjögurra laganna. Fimmta lagið var hins vegar unnið í Stúdíó Benmen á Króknum þar sem Fúsi Ben lék á trommur, bassa og undirgítar en Magnús Jóhann Ragnarsson á Hammond og Reynir Snær Magnússon á gítar.

Fyrir fimm árum gáfu þeir spilafélagar Guðmundur og Róbert út disk sem bar nafnið Orð en þá langaði alltaf að halda áfram. „Við gerum þetta í mjög miklum rólegheitum. Það má segja að þessi diskur sé afrakstur fimm ára mjög stopullar vinnu. Við höfum mjög gaman af þessu og þetta er bara það sem við höfum að segja þessa dagana,“ segir Guðmundur. „Nafnið segir svolítið til um það hvernig verkið hefur gengið, tíminn flýgur,“ skýtur Róbert inn í léttur í bragði og bætir við: „En að öllu gamni slepptu hefur þetta verið mjög skemmtilegt, en þetta er tímafrekt.“

Helgi Sæmundur, sonur Guðmundar, kom inn í kompaníið og útsetti eftir sínu höfði. Segir hann diskinn innihalda dægurlög en jafnvel með tilraunakenndu ívafi. „Ef maður hlustar á plötuna Orð, þá er hún byggð upp á sömu fjórum, fimm, hljóðfærunum en þarna kem ég inn með einhvers konar library í tölvunni þar sem hægt er að velja hvað hljóðfæri sem er og setja í lagið. Það tekur líka aukatíma að sigta þau út og ekki alltaf gott að hafa úr of miklu að velja. Við erum samt ánægðir með þetta,“ segir Helgi Sæmundur.

En hvernig skyldi hann hafa komið inn í þetta verkefni
„Það er nú bara þannig að pabbi hefur verið að ýta á mig í nokkur ár að gera alvöru músík,“ svarar Helgi Sæmundur á léttu nótunum en eins og allir vita hefur hann gert garðinn frægan með rappdúóinu Úlfur Úlfur. „Ég var nýfluttur aftur á Krókinn, kom tveimur mánuðum áður en konan mín, og bjó þá heima hjá mömmu og pabba. Ég var svona eiginlega að vinna upp í leigu og mat en svo langaði mig þetta líka. Í Úlfur Úlfur fylgir maður ákveðinni formúlu og ákveðnum stílum en ég fékk algert frelsi til að gera þetta. Fékk bara hljóma og texta og algert frelsi til að leika mér.“

Kápumynd disksins Tíminn flýgur eftir Lindu Þórdísi Barðdal Róbertsdóttur.

Kápumynd disksins Tíminn flýgur eftir Lindu Þórdísi Barðdal Róbertsdóttur.

Róbert er ánægður með útkomuna og segir þetta geggjað allt saman. „Mér finnst lögin hans Guðmundar, útsetningar Helga Sæmundar og endanleg útkoma frábær. Á pínu erfitt með að hlusta á sjálfan mig en hitt geggjað! Maður sér ákveðna þróun úr Orði yfir í þennan disk, bæði vinnuferlana hjá okkur og svo viðbótina, að fá Helga Sæmund inn. Framþróun í okkar vinnu alla vega,“ segir Róbert.

Lögin eru öll eftir Guðmund og textinn Tíminn flýgur, en þrír textanna eru eftir Hilmi heitinn Jóhannesson og einn eftir Gillon, Gísla Þór Ólafsson. Eitt lagið er unnið í Stúdíó Benmen en hin lögin í stofunni hjá Guðmundi í Eyrartúninu. 

Kápan er skemmtilega útfærð en hana gerði Linda Þórdís Barðdal Róbertsdóttir. „Úr því að við vorum búin að fá Helga Sæmund, sem er minn sonur, þá kom Róbert með dóttur sína, Lindu Þórdísi, í hönnun á kápunni. Hún sýndi strax algeran skilning á því sem við vildum koma fram með,“ segir Guðmundur.

Óvíst er hvar mennirnir skeggræða en kannski er það í Bakaríinu á Króknum. „Það eru mikil fræði á bak við þetta hjá okkur. Við óskuðum eftir því að við Guðmundur yrðum tveir að framan og svo þrír á bakhliðinni, þá væri Helgi Sæmundur kominn með. Þetta er djúpt!“ segir Róbert sposkur á svip.

Fyrir áhugasama er Tíminn flýgur kominn á streymisveituna Spotify en diska er hægt að kaupa í Skagfirðingabúð, Hlíðarkaup, Bakaríinu og Gránu á Sauðárkróki og kostar 2000 kr. „Hér er um fína jólagjöf að ræða eða bara til að eiga,“ segir Guðmundur, „enda allt þægileg lög.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir