Breytingar hjá Stólunum og Kormákur/Hvöt stefnir á toppbaráttunna
Á morgun, laugardaginn 15. ágúst, fer 17. umferðin fram í 2. og 3. deild karla þar sem Kormákur/Hvöt spilar útileik gegn Magna úr Grenivík og lið Tindastóls tekur á móti KV. Þá fer 14. umferðin í Lengjudeild kvenna einnig af stað og fara Stólastelpur á Seltjarnarnesið til að heimsækja Gróttu.
Skráðu þig inn til að lesa
Þú getur valið um þrjár áskriftarleiðir:
Leið 1 (blað og rafrænn aðgangur)
Færð blaðið inn um lúguna í hverri viku, rafrænan aðgang að pdf útgáfunni og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 3.495 kr. á mánuði m/vsk (3.149 án/vsk)
Það eru alltaf fjögur blöð í mánaðaráskriftinni.
Leið 2 (rafrænn aðgangur að pdf útgáfu blaðsins)
Færð rafrænan aðgang að pdf útgáfunni að Feyki og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 2.495 kr. á mánuði m/vsk. (2.248 kr. án/vsk).
Leið 3 (rafrænn aðgangur í viku)
Færð rafrænan aðgang að nýjasta tbl. Feykis og læstum fréttum í viku inn á feykir.is.
Kostar 695 kr. vikan m/vsk. (626 kr. án/vsk).
Fleiri fréttir
-
Mér fannst eitthvað mjög svalt við þessa írsku, uppreisnargjörnu og pínu reiðu gaura
Það virðist kannski ekki vera þannig meðan á þeim stendur en unglingsárin eru einstök og móta okkur á svo margan hátt. Vinskapur og alls konar dellur sem við uppgötvum á þessum árum fylgja okkur í gegnum lífið. Mörg okkar hafa til dæmis fallið fyrir einhverri hljómsveit á þessum árum og þær fylgja okkur endalaust; hvort sem það er nú Duran, Wham! eða já, U2. Um þessar mundir er hljómsveitin U2 að halda upp á 50 ára afmæli sitt og tónlistarnördar keppast við að búa til playlista og hampa þeim félögum; Bono, The Edge, Adam Clayton og Larri Mullen Jr. Feykir ákvað að taka þátt í þessu giggi og lagði nokkrar góðar spurningar fyrir einn helsta aðdáenda U2 á þessum slóðum, Áskel Heiðar Ásgeirsson, tónleikahaldara og háskólakennara með meiru.Meira -
Matsveinninn stóð í stórræðum í Drangeynni
Drangey SK 2 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn 5. október með tæp 147 tonn af fiski en þar af voru 131 tonn af þorski og mun minna í öllum öðrum tegundum. Í frétt á vef FISK Seafood segir að Drangey hafi verið á veiðum fyrir norðan Kolbeinsey, á Litlahrygg og Ostahrygg og að sögn Ágústs Óðins Ómarssonar skipstjóra var ágætis þorskveiði þar og fínt veður nema um miðja vikuna þegar kom smá bræla úr suð-austri.Meira -
Heilahjálp með fræðslu um heilabilun á Sauðárkróki í dag og Hvammstanga á morgun
morgun Heilahjálp – samtök um heilabilun (áður Alzheimersamtökin) bjóða til opinnar fræðslu um heilabilun, góð samskipti og stuðning við aðstandendur á Sauðárkrók og Hvammstanga í vikunni. Í Húsi Frítímans á Sauðárkrók þriðjudaginn 6. október kl. 17:30 og í safnaðarheimilinu á Hvammstanga miðvikudaginn 7. október kl. 17:00. Aðgangur er ókeypis og öll áhugasöm velkomin.Meira -
Loftgæði í ráðhúsi Húnaþings vestra langt undir viðmiðum
Húnahornið segir frá því að á fundi umhverfis-, veitu og framkvæmdaráðs Húnaþings vestra hafi á dögunum verið farið yfir loftgæðaathugun sem gerð var í Ráðhúsi sveitarfélagsins. Niðurstöður sérfræðinga sýna alvarlegt ástand í kjallara og á fyrstu hæð hússins.Meira -
Fyrsti dagur í sköfun
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 06.10.2026 kl. 08.56 oli@feykir.isFeykir ætlar kannski ekki að sverja fyrir að þessi staðreynd eigi við allsstaðar á Norðurlandi vestra en í það minnsta á Króknum þá var morguninn það kaldur og bjartur að flestir hafa sennilega þurft að leita að rúðusköfunni áður en farið var af stað á bílnum í fyrsta sinn þetta haustið. Nema að sjálfsögðu þeir sem búa svo vel að vera á bíl sem hitar upp sæti og afhéla rúður áður en bíllinn er settur í gang.Meira
