Flotnös og Lungnaslettir koma ekki lengur til byggða
Hvernig væri að fræðast aðeins um fleiri jólasveina en bara þessa þrettán sem við þekkjum svo vel? Það verður nefnilega hægt laugardaginn 5. desember þegar þau feðgin, Jón Jónsson og Dagrún Ósk Jónsdóttir, mæta á Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna á Reykjum í Hrútafirði og kynna bók sína, Gömlu íslensku jólafólin: Fróðleikur og ljótar sögur.
Í tilkynningu frá safninu segir: „Í gamla daga voru sagðar margar ljótar sögur um Grýlu, Leppalúða, jólasveinana og jólaköttinn. Grýla hefur t.d. búið með sex ferlegum tröllkörlum og Leppalúði haldið framhjá kerlu sinni. Jólasveinarnir eru mun fleiri en þrettán og stundum var sagt að þeir fitnuðu af blótsyrðum. Flotnös og Lungnaslettir koma ekki lengur til byggða, sem betur fer.
Jón og Dagrún Ósk mæta semsagt galvösk á byggðasafnið í Hrútafirði og fræða gesti um þessa skrítnu jólasveina sem einhverra hluta vegna hafa gleymst í tímans rás. „Endilega komið til okkar í jólasveinastuðið... tilvalið að skella sér á byggðasafnið fyrir eða eftir jólahlaðborð,“ segit í tilkynningunni.
Sunneva Guðrún Þórðardóttir teiknaði frábærar myndir af jólafólunum í bókina. Sögusmiðjan gefur út.
