Viðbygging við Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra vígð

Nýbygging við Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra. Mynd: hunathing.is.
Nýbygging við Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra. Mynd: hunathing.is.

Viðbygging við Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra á Hvammstanga var vígð síðastliðinn þriðjudag að viðstöddu fjömenni. Með viðbyggingunni hefur aðstaða í Íþróttamiðstöðinni batnað til muna og þjónusta við íbúana hefur aukist verulega. Sagt er frá vígslunni á vef sveitarfélagsins, hunathing.is.

Á vígsluhátíðinni fór Þorleifur Karl Eggertsson, oddviti, yfir sögu byggingarinnar sem að mestu var unnin af heimamönnum. Ráðbarður sf. sá um hönnun hússins sem hófst árið 2016.  Fyrsta skóflustungan var tekinn um mitt ár 2017 og var uppsteypu lokið vorið 2018 og var húsinu lokað þá um sumarið. Tók þá við frágangur innanhúss og utan sem lauk nú í haust.  Stærð viðbyggingarinnar er 300 m2.

Móttaka og aðkoma  gesta er nú orðin  góð eftir að anddyri var stækkað. Aðstaða til íþróttaiðkunar hefur batnað verulega með góðum þrektækjasal með nýjum tækjum og búnaði og einstöku útsýni yfir fjörðinn.  Einnig minni sal sem gefur mörguleika á að vera með hóptíma og fjölbreyttar æfingar.  Markmiðið er að koma til móts við fjölbreyttan notendahóp á öllum aldri.

Þá hefur aðstaða starfsfólks og kennara batnað. Geymslupláss hefur aukist og er góð áhaldageymsla í húsinu.  Aðgengi fyrir fatlaða hefur verið bætt með tilkomu lyftu og nýrrar snyrtinga fyrir fatlaða, og í byggingunni er nýtt dómaraherbergi með sturtuaðstöðu. Auk þess var eldri búningsaðstaða tekin upp að hluta, loftræsting og myndavélakerfi endurnýjað.

Þessar breytingar skapa ný tækifæri til að halda stærri íþróttaviðburði og hægt er að bjóða íþróttafélögum um land allt upp á fyrirtaks aðstöðu fyrir æfingahelgar.

Að lokinni yfirferð Þorleifs Karls tók fulltrúi ungmennaráðs Húnaþings vestra, Guðmundur Grétar Magnússon til máls og að lokum Anton Scheel Birgisson framkvæmdastjóri Ungmennasambands vestur Húnvetninga.   Dagskránni lauk með metnaðarfullri sýningu ungmenna sem æfa hestafimleika hjá hestamannafélaginu Þyt.

Myndir frá vígslunni má sjá á Facebooksíðu Húnaþings vestra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir