Yfir 200 krakkar væntanlegir á hrekkjavökuball á Blönduósi
Miðvikudaginn 4. nóvember verður heldur betur líf og fjör í Félagsheimilinu á Blönduósi en þá fer fram hrekkjavökuball fyrir nemendur í 5.–7. bekk af öllu Norðurlandi vestra. „Þetta er í fyrsta sinn sem sameiginlegt ball er haldið fyrir miðstig í landshlutanum og er von á yfir 200 krökkum,“ sagði Kristín Ingibjörg Lárusdóttir þegar Feykir spurðist fyrir um hrekkjavökuball á Blönduósi.
„Ballið er skemmtilegt tækifæri fyrir krakkana til að hittast, kynnast jafnöldrum úr öðrum skólum og eiga saman eftirminnilegt kvöld. Það stefnir í skemmtilegt kvöld með frábærri stemningu og miklu fjöri. Viðburðurinn er jafnframt skemmtilegt skref í að efla samveru og tengsl barna á miðstigi þvert á sveitarfélög á Norðurlandi vestra.“ segir Kristín.
Það stefnir því í sannkallaða hrekkjavökuveislu á Blönduósi þar sem gleði, tónlist og góð samvera verða í fyrirrúmi. Hrekkjavökuballið er haldið í tengslum við barnamenningarhátíðina Skúnaskrall sem stendur yfir dagana 21. október til 4. nóvember. Fjölbreytt og glæsileg dagskrá hefur verið í boði um allt Norðurland vestra og verður hrekkjavökuballið á Blönduósi skemmtilegur lokapunktur hátíðarinnar.
