Aðventugleði á Hofsósi
Við opnum dyrnar á Höfðaborg kl. 14 og lofum góðri aðventustemmningu:
Það verður hægt að kaupa kaffi og með því af hlaðborði.
Einnig verður markaður með föt, garn, matvöru og fleira. Sjón er sögu ríkari.
- Bókasafnið býður upp á bókakynningar og upplestur.
- Nemendur GAV verða með tónlistaratriði.
- KS Hofsós verður með tilboð í búðinni og opið til kl. 18.
- Í sundlauginni verður aðventustemmning
með jólalögum og jólanasli.
- Eldur og kakó í Smáhólaskógi við Hofsós.
Kannski birtast óvæntir gestir!
Sjá nánar á Facebook síðu Verðandi endurnýtingarmiðstöð.
KS Hofsós
Retró Mathús
Verðandi endurnýtingarmiðstöð
Sundlaugin Hofsósi
Gallery Trefill
Héraðsbókasafn Skagfirðinga

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.