Fjölskylduhlaup - í tilefni af Gulum september
KS og Vörumiðlun vilja leggja verkefninu Gulur september lið. Verkefnið er vitundavakning um geðrækt og sjálfsvígsforvarnir. Á alþjóðlegum forvarnardegi sjálfsvíga, fimmtudaginn 10. september, blásum við til skemmtihlaups fyrir alla fjölskylduna! Hlaupið hefst kl. 17:00 við Sundlaug Sauðárkróks. Tvær hlaupaleiðir - 3 og 5 km. Hlaupum, löbbum eða hjólum saman og sýnum málstaðnum stuðning.
Öll hartanlega velkomin!
Frjáls framlög á staðnum til styrktar Píeta. Einnig er hægt að millifæra á reikning Píeta: kt. 410416-0690 / 0301-26-041041.
550 Rammviltar sjá um hressandi upphitun og sjá til þess að allir séu klárir í startið.
Gulur er litur sjálfsvígsforvarna og því væri gaman ef sem flestir kæmu í einhverju gulu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.