10. september kl. 17:00-18:30Hvað er að gerastvefnámskeið
10sep
vefnámskeið
Námskeið í fræsöfnun trjáa, runna og garðplantna
Langar þig að læra að safna eigin fræi og rækta nýtt líf úr garðinum og náttúrunni?
Á þessu fróðlega og notalega námskeiði verður farið yfir hvernig safna má fræi af trjám, runnum og fjölærum garðplöntum — og hvernig rétt meðhöndlun eykur líkur á góðri spírun og heilbrigðum plöntum.
Farið verður yfir: • hvenær best er að safna fræi af mismunandi tegundum að hausti og yfir veturinn • hvernig þekkja má þroskað fræ • hreinsun og flokkun fræs • geymslu fræs fram að vori • kaldmeðhöndlun og vetrarsáningu • undirbúning fyrir sáningu og spírun
Námskeiðið hentar öllum sem hafa áhuga á ræktun, garðyrkju og sjálfbærni — hvort sem þú ert byrjandi eða með reynslu.
Komdu og lærðu að varðveita og fjölga plöntunum sem þér þykir vænt um
Leiðbeinandi: Auður I. Ottesen garðyrkjufræðingur
Hvar og hvenær: 10.september 17:00-18:30
Verð: 16.900 kr*
*ATH: Stéttarfélögin Aldan, Samstaða, Kjölur, Sameyki, Verslunarmannafélag Skagafjarðar og stéttarfélög sem eru aðilar að Iðunni greiða námskeiðsgjaldið að fullu fyrir sína félagsmenn. (Athugið að þetta á við greiðandi félagsmenn í flestum tilfellum og hefur ekki áhrif á persónulegan námsstyrk félagsmanna) Athugið að námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi
Í skýrslu sem Hafrannsóknastofnun gaf út árið 1972, en nú virðist vera týnd og tröllum gefin, lagði stofnunin til „að fyrir Norður- og Austurlandi yrðu allar tog - og dragnótaveiðar innan 12 sjómílna markanna bannaðar og fyrir Suður- og Vesturlandi innan 6 sjómílna. Vegna skarkolaveiða mætti þó gera undantekningu.” Utan 12 sjómílna markanna lagði stofnunin til að hægt væri “að friða og opna á víxl eftir ástandi og magni smáfisks á svæðunum.”
Runninn er upp nýr dagur. Fögur sólin gægist yfir sjóndeildarhringinn og dalalæðan sveipar landið dulúð. Íslenska þjóðin vaknar eftir harðvítugar deilur og afar umdeilda þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort hefja skuli á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Niðurstaðan varð naumur sigur þeirra sem ekki töldu rétt að leggja af stað í þá vegferð.
Baráttan um Ísland hefur tekið á sig margar myndir í gegnum tíðina. Hún hefur verið barátta fyrir því að lifa af í harðbýlu landi. Barátta sjómanna við hafið, bænda við náttúruöflin og fólks um allt land við að byggja hér upp samfélag þar sem áður var lítið annað en trúin á að það væri hægt.
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Trommarinn Kristján Kristjánsson fæddist á Siglufirði árið 1973 líkt og tvíburabróðir hans Kristinn, nema Kiddi spilar á bassa. Fjölskyldan flutti á Krókinn þegar Stjáni var níu ára og telur hann sig því meiri Króksara en Siglfirðing (!). „Ég er sonur Jóninnu Hjartardóttur hundaræktanda í Hveragerði og Kristjáns Óla Jónssonar, fyrrverandi lögregluvarðstjóra í Lögreglunni á Sauðárkróki, eða Roy eins og hann er kallaður á stöðinni. Ég spilaði á pottana hjá mömmu frá því að ég man eftir mér en færði mig svo yfir í alvöru trommur og slagverk ýmisskonar þegar ég áttaði mig á því að það væri engin framtíð í því að spila á potta endalaust með prjónunum hennar móður minnar,“ segir Stjáni sem nú hamrar húðir og járn hjá Geirmundi.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.