Guðni Th. Jóhannesson með bókarkynningu
Guðni Th. Jóhannesson kynnir nýja bók sína, Vald hinna veiku. Saga landhelgismálsins, 1971-1974. Kynningin verður haldin á Héraðsskjalasafni Skagfirðina þann 29. október, kl. 17:00. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Í bókinni segir Guðni frá útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 50 sjómílur og þeim átökum sem þá urðu. Frásögnin er æsispennandi og lætur engan ósnortinn. Grundvallarrit um lífshagsmuni íslenskrar þjóðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.