Guðrið Hansdóttir - Útgáfutónleikar Sýrublað Hótel Laugarbakka
Platan Sýrublað kom út fyrr á árinu við frábærar viðtökur. Um tónlistina segir Guðrið sjálf: „Tónlistin er eins og að bíta í túnútublað (súru) – fersk, stökk, græn og örlítið súr.“ Platan er pródúseruð af Høgni Lisberg og einkennist af grípandi og draumkenndum indí-pop hljómi sem Guðrið er þekkt fyrir. Guðrið hefur verið áberandi í færeysku og norrænu tónlistarlífi allt frá aldamótum, bæði sem sólólistamaður og sem hluti af rafpopp-dúettinum BYRTA. Fyrri plata hennar, Gult myrkur, var m.a. valin plata ársins á Færeysku tónlistarverðlaununum (FMA). Á þessu ferðalagi um Ísland verður Guðrið ekki ein á ferð, heldur fær hún til liðs við sig tvo magnaða meðspilara. Ekki missa af tækifærinu til að upplifa einn af skærustu tónlistarmönnum Færeyja í lifandi og nánu umhverfi. Tryggðu þér miða strax!
https://stubb.is/events/nK3jYn

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.