Hrekkjavaka á Sauðárkróki

31. október kl. 17:00-19:00 Hvað er að gerast Sauðárkrókur
31 okt

Grikk eða gott gangan fer fram laugardaginn 31. október frá kl. 17:00 - 19:00.
Eins og í fyrra þurfa þau hús sem taka þátt að vera með kveikt á friðarkerti annaðhvort eitt og sér eða inni í útskornu graskeri og/eða skreyta í anda hrekkjavökunnar til að gefa til kynna að nammi sé í boði. Einnig finnst börnunum æðislega gaman ef “gestgjafi” tekur á móti þeim í búning, en það er að sjálfsögðu undir hverjum og einum komið.

Á Facebook er hópur sem heitir Halloween á Sauðárkróki og þar er komin linkur á google forms þar sem þeir sem ætla að bjóða upp á nammi skrá heimilisfang sitt, til að auðvelda utanumhald.

Að sjálfsögðu eru öll börn Skagafjarðar velkomin.

Skemmtum okkur saman á hrekkjavökunni!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.