Hannes Pétursson sendir frá sér Hjá Leyningsvötnum
Skagfirðingurinn, ljóðskáldið og fræðimaðurinn Hannes Pétursson (fæddur á Sauðárkróki í desember 1931) hefur verið meðal höfuðskálda þjóðarinnar í rúma sjö áratugi eða frá því að hann kvaddi sér hljóðs með Kvæðabók árið 1955. Það heyrir til tíðinda þegar hann sendir frá sér ljóðabók og því ánægjulegt að segja frá því að hann hefur sent frá sér ljóðabókina Hjá Leyningsvötnum.
Í tilkynningu á vef bókaútgáfunnar Benedikts segir að á „...löngum og farsælum ferli hefur hann hlotið fjölda viðurkenninga og verðlauna fyrir verk sín, þar á meðal Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir ljóðabókina Eldhyl árið 1993.
Hjá Leyningsvötnum er tólfta ljóðabók Hannesar. Skáldinu er vant einskis á árstíð saknaðarins og hefur ekki dregið úr dirfsku sinni við að takast á við nútímann.“
Marga nótt starði hann uppnuminn
á stjörnuskrúð himinbogans
og því líkast sem gæfist honum það
í hinsta sinni
áður en svæfi, svæfi undir torfu
hið sönglausa brjóst.
