15. apríl kl. 17:00-19:00Hvað er að gerastvefnámskeið
15apr
Hvernig hafa hnattrænar loftslagsbreytingar áhrif hér á landi? Þreifað verður á umræðunni og þeirri óvissu fyrir okkur Íslandi í ljósi þess raunhæfa möguleika að mjög dragi úr streymi hlýsjávar norður á Atlandhafið (veltihringrásinni AMOC). Verða þeir líklegri í framtíðinni sæludagar eins og í góðviðris kaflanum eftirminnilega í maí 2025, eða leitar loftslagið í það far eins og líktist í lok 19. aldar þegar flótti, ekki síst Norðlendinga vestur um haf stóð sem hæst?”
Leiðbeinandi: Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur
Vefnámskeið
Hvar og hvenær: 15. apríl klukkan 17:00-19:00
Verð: 14.900 kr*
*ATH: Stéttarfélögin Aldan, Samstaða, Kjölur, Sameyki, Verslunarmannafélag Skagafjarðar og stéttarfélög sem eru aðilar að Iðunni greiða námskeiðsgjaldið að fullu fyrir sína félagsmenn. (Athugið að þetta á við greiðandi félagsmenn í flestum tilfellum og hefur ekki áhrif á persónulegan námsstyrk félagsmanna) Athugið að námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi
Á Sauðárkróki er stunduð öflug og lifandi leikhúsmenning þrátt fyrir að aðstaðan til að rækta hana að fullu hefur ekki haldið í við metnaðinn. Það er löngu tímabært að horfast í augu við þá staðreynd að hér á Króknum vantar menningarhús sem getur raunverulega sinnt leiksýningum, tónleikum og ýmsu öðru viðburðahaldi, hvert svo sem það er. Nú styttist í að ráðist verði í byggingu nýs menningarhúss við Safnahúsið á Flæðunum og er það fagnaðarefni.
Fyrir fáeinum árum fór fram mikil umræða í landinu um innflutning á hráu kjöti og voru þá margir landsmenn gagnrýnir á að íslensk stjórnvöld nýttu sér ekki ákvæði EES samningsins um heimildir til undanþágu frá innflutningi á hrávöru sem þó væri að finna í þeim samningi. Kunnur er ásetningur Evrópusambandsins að hafa eins litlar undanþágur og takmarkanir og kostur er á verslun með matvæli og á hið sama við um flutning á lifandi dýrum. Íslendingar hafa sem betur fer ekki undirgengist þennan strangtrúnað óheftrar markaðshyggju að fullu þótt þegar hafi þeir gengið of langt að mínu mati og þyrfti að kanna að hvaða marki mætti endurvekja vannýttar heimildir EES samningsins. Þetta liggur nánast í augum uppi.
Um miðjan mars kom uppáhalds Íslendingur heimsbyggðarinnar loks heim til Íslands og hélt tvenna tónleika fyrir alls 16 þúsund manns. Ég held að allir landsmenn séu rígmontnir af henni Laufeyju okkar og kannski ekki síst vegna þess að hún er ekki aðeins frábær tónlistarkona, ung, hæfileikarík og glæsileg, heldur er ekki annað að sjá og heyra en að hún sé góð manneskja.
Herra Hundfúll fylgdist með keppni í Skólahreysti með öðru auganu nú á laugardaginn. Hann gladdist talsvert yfir gengi skólanna á Norðurlandi vestra. Varmhlíðingar voru sendir upp á svið til að taka við verðlaunum fyrir þriðja sætið en nemendur Grunnskóla Húnaþings vestra enduðu í fjórða sæti en með jafnmörg stig og Varmahlíðarskóli. En svo var farið að reikna ... aftur...
Tón-lystar-spekingurinn í þetta skiptið er Haukur Freyr Reynisson, oft kenndur við Bæ á Höfðaströnd. Haukur er fæddur á fyrsta ári áttunda áratugarins, fyrstu árin alinn upp í Hveragerði en síðan í skagfirsku sælunni. Haukur segist spila á svuntuþeysi (gamalt orð yfir hljóðgerfil eða hljómborð) og hans helstu afrek í tónlistinni eru að vinna ekki hljómsveitakeppni í Húnaveri, komast ekki í úrslit í músíktilraunum en spila svo á dansiböllum um allt land.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.