23. október kl. 18:00-20:30Hvað er að gerastBifröst, Sauðárkróki
23okt
Leikfélag Sauðárkróks sýnir í Bifröst Blái hnötturinn í leikstjórn Ólafs Jens Sigurðssonar. Hægt að panta miða í síma 849-9434 milli kl. 16 og 18 á sýningardögum.
Það var hátíðleg stund á Hólum í Hjaltadal föstudaginn 9. október sl. þegar 26 nemendur luku námi frá Háskóla Íslands á Hólum. Dagurinn var sérstakur bæði fyrir nemendur og skólann, því þetta var fyrsti hópurinn sem útskrifaðist undir nýju nafni skólans og fyrsti nemendahópurinn sem útskrifast frá háskólasamstæðu Háskóla Íslands.
Tíminn flýgur áfram og hann teymir mig á eftir sér
og ekki fæ ég miklu ráðið um það hvert hann fer.
En ég vona bara að hann hugsi svolítið hlýlega til mín
og leiði mig á endanum aftur til þín.
Á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga þann 8. október 2026 lagði Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra áherslu á mikilvægi þess að standa vörð um lítil hjúkrunarheimili með 10–12 íbúum. Þetta eru mikilvæg orð sem ber að fagna. En þau vekja jafnframt áleitnar spurningar um framtíð þessara heimila þegar heilbrigðisstofnanir landsins standa frammi fyrir miklum kröfum um niðurskurð og hagræðingu.
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Það síðasta sem Hinni blaðamaður bað um áður en hann stökk af stað í hrossadómgæslu var að bróðir hans fengi að svara Tón-lystinni ... kannski ekki satt en hljómar vel. Það er nefnilega Friðrik Þór Jónsson organisti og tónlistarkennari í Skagafirði sem tekur slaginn að þessu sinni. Hann er fæddur 1972. „Fæddur og uppalinn á Laugum í Reykjadal (Dalnum græna) þar sem fyrsta innisundlaug landsins var gerð 1925 og kaupfélagið var fundið upp í hreppnum. Foreldrar mínir hétu Jón Aðalsteinn og Elín Inga. Ég kom í Hólaskóla og hef ekki farið síðan úr firðinum fagra,“ segir kappinn.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.