14
nóv
Skagfirðingurinn og vínfræðingurinn Sóley Björk leggur leið sína heim á Krók og verður með smökkun á spennandi úrvali á sérvöldum spænskum vínum sem verða pöruð með 6 rétta máltíð frá úrvalseldhúsinu á Sauðá!
Sóley segir frá vínunum og ræðir hvernig maturinn og vínið vinna saman í pöruninni - sannkallað ævintýri fyrir bragðlaukana!
Vínin eru sex talsins, öll frá litlum handverksframleiðendum sem leggja mikinn metnað í bæði ræktun og framleiðslu. Boðið verður upp á vín í hæstu gæðaflokkum Spánar, meðal annars corpinnat sem er hæsti klassi af freyðivíni, og rauðvín fra Priorat sem er eitt virtasta rauðvínshérað Spánar.
Smökkunin með 6 rétta kvöldmat kostar 19.900 krónur
Smakkanirnar hafa reynst mjög vinsælar svo það er um að gera að tryggja sér miða sem fyrst - það er gert með því að senda tölvuóst á soley@barselona.is með nafni og fjölda gesta!
Sjáumst!
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.