Umhverfisdagur FISK-SEAFOOD
Umhverfisdagur FISK Seafood verður þann 9. maí árið 2026 og sem fyrr hvetjum við alla til þess að mæta og styrkja sitt íþróttafélag. Árið 2025 mættu 927 manns á öllum aldri og söfnuðu samtals 21,4 tonnum af sorpi víðs vegar um Skagafjörð og voru rúmlega 11 milljónir króna samtals greiddar í styrki til 16 íþróttafélaga! En frá því að fyrsti Umhverfisdagurinn árið 2021 var haldinn hafa yfir 70 tonn af rusli verið fjarlægð úr náttúrunni í Skagafirði. Frekari upplýsingar varðandi Umhverfisdag verða birtar þegar nær dregur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.