Bergmál fjallanna - Fyrsta plata Sigurdísar Tryggvadóttur

Sigurdís Tryggvadóttir. Mynd: Terese Lærke
Sigurdís Tryggvadóttir. Mynd: Terese Lærke

Tónskáldið, píanóleikarinn og söngkonan Sigurdís Tryggvadóttir frá Ártúnum í Blöndudal snýr á heimaslóðir og heldur útgáfutónleika í tilefni af fyrstu plötu sinni, Bergmál fjallanna. Platan kemur út á Íslandi 31. október og fara tónleikarnir fram í Blönduóskirkju, Hvammstangakirkju og Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð. Feykir lagði nokkrar spurningar fyrir tónlistarkonuna.

Nú styttist í tónleikaröðina þína. Ertu ekki að verða spennt? „ Jú, ég hlakka mjög mikið til! Nú erum við búin að spila nokkra tónleika í Danmörku, en það er sérstaklega gaman að fá að koma með tónlistina á heimaslóðir, þar sem hún á rætur sínar.”

Við hverju mega tónleikagestir búast, hvernig myndir þú lýsa tónlistinni þinni? „Tónleikagestir munu heyra mínar tónsmíðar og lög og ljóð Jónasar Tryggvasonar, afabróður míns. Það er oft erfitt að lýsa eigin tónlist, en ég hef heyrt aðra lýsa henni sem mínimalískri, tregafullri og hlýrri.”

Verður þú ein á ferð eða með einhverja snillinga með þér? „Ég er svo heppin að vera með tvo frábæra tónlistarmenn með mér, þá Mariusz Praśniewski frá Póllandi á bassa og Péter Horváth frá Ungverjalandi á trommur. Við búum öll í Kaupmannahöfn og höfum spilað saman í mörg ár. Það er sérstaklega dýrmætt að hafa með sér tónlistarmenn sem eru góðir vinir manns og þekkja tónlistina vel.”

Ertu sest að í Danmörku eða ertu á leið heim? „Ég flutti frá Óðinsvéum til Kaupmannahafnar í byrjun árs. Ég hef engin plön um að flytja heim eins og er, en útiloka það ekki. Ég ætla bara aðeins að leyfa lífinu að koma í ljós.”

Hvað ertu að gera í Danmörku / ertu eingöngu í músík? „Eins og staðan er núna, já, þá er ég eingöngu í tónlist. Ég hef verið í tónlistarnámi í Danmörku síðan 2017 og lauk nú í september sólistanámi við Syddansk Musikkonservatorium. Samhliða náminu hef ég meðal annars starfað við tónlistarkennslu og tekið þátt í ýmsum tónlistarverkefnum. Síðustu mánuðir hafa farið í að klára námið og sinna útgáfu Bergmáls fjallanna og öllu sem því fylgir.”

Vöfflukaffi að tónleikunum loknum

Útgáfutónleikar verða haldnir: 31. október kl. 14 í Blönduóskirkju, þann 1. nóvember kl. 14 í Hvammstangakirkju og síðan 4. nóvember kl. 20 í Miðgarði. Aðgangur er ókeypis en í Blönduóskirkju verður tekið á móti frjálsum framlögum í kirkjusjóð. Það verður vöfflukaffi í boði Vilko að öllum tónleikum loknum.

Hægt er að forpanta vínylplötuna og fá hana afhenta á tónleikunum. Platan kemur fyrst um sinn eingöngu út á vínyl í 200 eintökum. Ljóðin fimm á plötunni fylgja með í útgáfunni ásamt enskum þýðingum Elin Thordarson. Tónleikarnir eru styrktir af Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra og Menningarsjóði KS. /óab

Fleiri fréttir