Hvíti riddarinn í tómu tjóni á Blönduósi
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Íþróttir, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni
28.06.2026
kl. 19.38
oli@feykir.is
Það var leikið á Blönduósvelli á sama tíma og rabarbaranum var gert hátt undir höfði í Gamla bænum. Gestir Kormáks/Hvatar að þessu sinni var lið Hvíta riddarans úr Mosfellsbænum og þeir voru sendir rakleiðis heim að leik loknum með 4-0 tap á bakinu.
Skráðu þig inn til að lesa
Þú getur valið um þrjár áskriftarleiðir:
Leið 1 (blað og rafrænn aðgangur)
Færð blaðið inn um lúguna í hverri viku, rafrænan aðgang að pdf útgáfunni og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 3.495 kr. á mánuði m/vsk (3.149 án/vsk)
Það eru alltaf fjögur blöð í mánaðaráskriftinni.
Leið 2 (rafrænn aðgangur að pdf útgáfu blaðsins)
Færð rafrænan aðgang að pdf útgáfunni að Feyki og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 2.495 kr. á mánuði m/vsk. (2.248 kr. án/vsk).
Leið 3 (rafrænn aðgangur í viku)
Færð rafrænan aðgang að nýjasta tbl. Feykis og læstum fréttum í viku inn á feykir.is.
Kostar 695 kr. vikan m/vsk. (626 kr. án/vsk).
Fleiri fréttir
-
Lið 11. flokks drengja náði góðum árangri á móti á Spáni
Dagana 18.–22. júní var lið Tindastóls í 11. flokki dengja í körfubolta mætt til keppni á Euro Youth Basketball Cup í bænum Blanes, rétt norðan við Barcelona á Spáni. Liðið endaði í fjórða sæti mótsins og spilaði hörkuleiki, auk þess sem strákunum fannst ekki leiðinlegt að fara í vatnsrennibrautagarð. Feðgarnir Helgi Margeirsson og Hallur Atli skrifuðu stutta ferðasögu:Meira -
Brjálað að gera í útköllum | Hafdís Einarsdóttir skrifar
Síðustu þrjár vikur hafa verið annasamar hjá Björgunarsveitinni Skagfirðingasveit. Á þeim tíma hefur sveitin verið kölluð út fjórum sinnum og í fimmta sinn rétt áður en undirrituð ýtti á send-takkann til fréttamiðils [um kl. 21 í gærkvöldi]. Verkefnin fimm sýna vel hversu fjölbreytt hlutverk björgunarsveita er og hversu mikilvægt það er að vera ávallt tilbúin þegar kallið kemur.Meira -
Húsnæðiserfiðleikar ungs fólks innan ESB | Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Aðsendar greinar, Vestur-Húnavatnssýsla 03.07.2026 kl. 08.20 oli@feykir.isFyrirsögnin hér að ofan er sú sama og á skýrslu Eurofound, stofnunar á vegum Evrópusambandsins sem fjallar meðal annars um húsnæðismál. Skýrslan kom út í desember síðastliðnum og er þar dregin upp vægast sagt dökk mynd af stöðu þeirra mála innan sambandsins og sérstaklega í tilfelli ungs fólks. Til að mynda kemur fram að mikill og vaxandi skortur sé á íbúarhúsnæði og húsnæðisverð fyrir vikið hækkað mikið. Að meðaltali um 50% en í ýmsum ríkjum þess þrefaldast. Á sama tíma hefðu laun ekki fylgt þeirri þróun. Það ætti einkum við um ung fólk sem væri gjarnan bæði á lágum launum og í óöryggri vinnu sem þýddi að það ætti oft erfitt með að standast greiðslumat og að safna fyrir hárri útborgun sem tekið gæti mörg ár.Meira -
Elísa Bríet á fullu með U19 landsliðinu
„Ég er stödd í Sarajevo, höfuðborg Bosníu og Hersegóvínu. Það er mjög heitt og búið að vera sól og 30+ gráður alla dagana hingað til,“ segir Skagstrendingurinn Elísa Bríet Björnsdóttir sem er að spila með íslenska U19 landsliðinu í knattspyrnu en liðið spilar undir stjórn Donna þjálfara.Meira -
Aðsókn á bókasafnið á Króknum eykst milli ára
„Það er ánægjulegt að greina frá því að fjölgun gesta á Héraðsbókasafni Skagfirðinga, fyrri hluta ársins 2026 á Sauðárkróki, er tæp 10% miðað við fyrri hluta ársins í fyrra,“ segir í frétt á heimasíðu Skagafjarðar en gestum safnsins á Króknum hefur fjölgað alla mánuði ársins milli ára en mest þó í maí og júní. Árið 2025 komu 4.086 gestir á fyrri hluta ársins, en í ár eru gestirnir 4.477 sem er fjölgun um rúm 9,5%.Meira
