Lón & Rakel flytja jólalög í Sauðárkrókskirkju
Það styttist óðum í að jólasöngvarar hefji upp sínar raustir enda jólin að nálgast seilingarfjarlægð. Í Skagafirði eru nú í það minnsta þrennir jóla-popp-tónleikar planaðir en Feykir hefur áður sagt frá Jólasveiflu í Miðgarði í lok nóvember þar sem jólalögin hans Geira verða í öndvegi og Jólin Heima sem verða í Miðgarði 12. desember. Nú hafa bæst við jólatónleikar í Sauðárkrókskirkju 3. desember þar sem Lón & Rakel verða á mjúku nótunum.
Tríóið Lón skipa þeir Valdimar Guðmundsson eðalsöngvari og gítarleikararnir Ásgeir Aðalsteinsson og Ómar Guðjónsson. Rakel, söngkonan sem fylgir Lóni, er Sigurðardóttir og fædd og uppalin á Akureyri. Fyrir nokkrum árum gaf Lón út plötuna Fimm mínútur í jól í slagtogi með Rakel og þar má finna skemmtilegar og lágstemmdar útgáfur af þekktum jólalögum á borð við Er líða fer að jólum, Ef ég nenni og Gleði og friðarjól.
Hægt er að versla miða á tónleikana á stubbur.is en miðinn er á kr. 6.990. Kirkjan er opnuð kl. 20:00 en tónleikarnir hefjast hálftíma síðar.
