Blái hnötturinn mun svífa í Bifröst

Frá æfingu á Bláa hnettinum í Bifröst. Mynd: Kristey Rut
Frá æfingu á Bláa hnettinum í Bifröst. Mynd: Kristey Rut

Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir Bláa hnöttinn eftir Andra Snæ Magnason, í leikstjórn Ólafs Jens Sigurðssonar, þann 16. október næstkomandi. Leikgerðin er eftir Berg Þór Ingólfsson. Hátt í 60 manns koma að sýningunni í haust og æfingar hafa staðið yfir af fullum krafti frá því í lok ágúst.

Feykir hafði samband við Sögu Ragnars, formann leikfélagsins til að forvitnast um sýninguna.

„Margir muna eflaust eftir Bláa hnettinum. Bókin Sagan af Bláa hnettinum kom út árið 1999 og var sett á fjalir Þjóðleikhússins árið 2001. Haustið 2002 setti Leikfélag Sauðárkróks verkið upp, fyrst allra áhugaleikfélaga landsins. Nú, rúmum tveimur áratugum síðar, leikum við sama leik aftur og verðum fyrst áhugaleikfélaga til að setja upp þessa útgáfu verksins, sem byggir á uppfærslu Borgarleikhússins.

Í sýningunni stíga á svið 20 börn og ungmenni á aldrinum 9–18 ára, ásamt tveimur aðeins eldri leikurum. Í þessari útgáfu eru gullfalleg lög Kristjönu Stefánsdóttur þar sem raddir barnanna fá að njóta sín til fulls. Lagið Sautján þúsund sólargeislar hlaut meðal annars Grímuverðlaunin og ég held að óhætt sé að lofa gæsahúð, og jafnvel nokkrum tárum, þegar tónar þess óma um Bifröst.

Blái hnötturinn segir frá plánetu þar sem einungis börn búa, í friði, gleði og nægjusemi. En einn daginn lendir þar geimskip og út stígur Gleði-Glaumur, hinn fullorðni ryksugufarandsölumaður. Hann býður börnunum ótal freistingar og getur látið drauma þeirra rætast. Það eina sem hann biður um í staðinn er örlítil greiðsla sem tekur varla að nefna.

En ekki er allt sem sýnist!!!

Miðasala á Bláa hnöttinn fer fram á: leikfelag550.is. Við hlökkum til að taka á móti leikhúsgestum í Bifröst frá 16. október.”
Sagði Saga og hvetur Feykir unga og aldna, en Blái hnötturinn á ekki síður erindi við follorðna, til að flykkjast í leikhús. /hmj

Fleiri fréttir