Að loknum kosningum

Nú að loknum alþingiskosningum er mér efst í huga þakklæti til alls þess fjölda stuðningsfólks sem bæði hvatti mig og studdi og okkur frambjóðendur í kosningabaráttunni. Sérstaklega er ég þakklátur kjósendum mínum og samherjum í Norðvesturkjördæmi fyrir góða vinnu og dyggan stuðning.

Sjálfum fannst mér kosningabaráttan ákaflega gefandi og skemmtileg. Hvarvetna í kjördæminu sem ég fór fann ég mikinn hugmyndafræðilegan samhljóm með íbúum enda þekki ég aðstæður vel.

Fullveldismálin, afturköllun umsóknar að ESB, sjávarútvegsmálin og baráttan fyrir stöðu sjávarbyggðanna, landbúnaður, matvælavinnsla, ferðaþjónustan, samgöngumál kjördæmisins, raunveruleg náttúruvernd og ekki síst heilbrigðisþjónustan á landsbyggðinni - öll þessi baráttumál sem við stöndum fyrir komu skýrt fram í kosningabaráttunni og höfðu sín áhrif.

Svo sannarlega vildi ég hafa náð kosningu inn á Alþingi og geta beitt kröftum mínum þar.

Ég mun áfram sem hingað til berjast með samherjum mínum í kjördæminu og fólkinu í landinu fyrir hugsjónum okkar og baráttumálum og leita þeim stuðnings þótt það verði á öðrum vettvangi en ræðustóli Alþingis.

Bæði Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn, sigurvegarar kosninganna, lofuðu því að eitt fyrsta verk þeirra í ríkisstjórn yrði að afturkalla ESB-umsóknina og loka áróðurmiðstöð ESB hér á landi. Þessi skilyrði væru af þeirra hálfu óumsemjanleg. Við þessi loforð verður að standa

Úrslit kosninganna undirstrikuðu mikilvægi þess að frambjóðendur og flokkar standi við grunnstefnumál sín og kosningaloforð þegar þeir komast í ríkisstjórn og hverjar afleiðingarnar verða fyrir þá flokka, ef það bregst. Traustið er þá týnt og verður ekki endurunnið með loforðum og auglýsingaherferð. Það verða ávalt verkin sem tala. Þannig hef ég unnið og mun gera.

Ég óska stuðningsfólki mínu og landsmönnum öllum gleðilegs sumars.

Jón Bjarnason

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir