Alþjóðlegi safnadagurinn hjá Byggðasafni Skagfirðinga á sunnudaginn
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Aðsendar greinar, Vestur-Húnavatnssýsla
14.05.2025
kl. 14.40
Í tilefni safnadagsins þann 18. maí n.k. verður í fyrsta sinn boðið upp á opið hús í varðveislurými safnsins í Borgarflöt 17D á Sauðárkróki kl. 14-16.
Þetta er einstakt tækifæri til að virða fyrir sér þann safnkost sem ekki er í sýningum safnsins og til að berja varðveislurýmið augum. Það verður heitt á könnunni, við hlökkum til að taka á móti ykkur!
Einnig verður frítt að heimsækja safnsvæðið í Glaumbæ milli kl. 14-16 og boðið upp á leiðsögn kl. 14. Þá verður kaffihlaðborð á boðstólnum í Áshúsi.
Verið velkomin!
/Fréttatilkynning