Getur þú bætt í þekkingarbrunn um íslenska náttúru? | Jóhann Helgi Stefánsson skrifar

Jóhann Helgi Stefánsson, sérfræðingur hjá Landi og skógi. AÐSEND MYND
Jóhann Helgi Stefánsson, sérfræðingur hjá Landi og skógi. AÐSEND MYND

Ísland er auðlindaríkt land, en auðlindirnar sem oft er litið fram hjá í daglegri umræðu eru þær sem felast í gróðri og jarðvegi. Íslensk gróðurvistkerfi hafa sögulega orðið fyrir miklu raski svo sem rofi og því er einstaklega mikilvægt að hlúa að móunum okkar. Til þess er ómetanlegt að eiga góðar myndir af landi svo hægt sé að fylgjast með gangi mála. Þar gætir þú, kæri lesandi, komið sterkur inn.

Með þátttöku í verkefninu Landvöktun – lykillinn að betra landi, sem ætlað er að kanna ástand þessara auðlinda og hvernig þær þróast, getur þú bætt í þennan mikilvæga þekkingarbrunn.

Landvöktun: Fylgstu með landinu þínu og gerðu það betra

Landvöktun er svokallað lýðvísindaverkefni (citizen science project) sem gerir landeigendum og öðrum áhugasömum einstaklingum kleift að kynnast landinu sínu á nýjan hátt. Með því að taka þátt í Landvöktun getur þú fylgst með þróun gróðurfars og jarðvegs á þínu svæði og einnig haft áhrif á hvernig ástand landsins breytist í framtíðinni. Þetta er ekki aðeins tækifæri til að læra um landið þitt, heldur einnig að leggja þitt af mörkum til að bæta það.

Hvernig virkar það?

Verkefnið fer fram með einföldum hætti. Þátttakendur ákveða sjálfir hvaða land þeir vakta og sinna vöktuninni á þeim tíma sem hentar þeim best. Snjallsímar eru notaðir til þess að skrá upplýsingar um ástand gróðurfar og jarðvegs. Þessi gögn eru síðan nýtt, ásamt öðrum gögnum, til að meta ástand landsins og bæta ákvarðanir sem snúa að sjálfbærri landnýtingu og endurheimt landgæða þar sem þörf er á.

Af hverju að taka þátt?

  • Fáðu betri yfirsýn yfir landið þitt: Með því að taka þátt í Landvöktun öðlast þú betri skilning á hvernig landið þitt er að þróast og hvaða áhrif mismunandi landnýting hefur á það.
  • Leggðu þitt af mörkum til vernda auðlindirnar okkar: Þátttakan í verkefninu hjálpar til við að safna mikilvægum upplýsingum sem stuðla að bættu ástandi landsins og aukinni sjálfbærni.
  • Taktu þátt í samfélagsverkefni: Verkefnið er í raun samfélagsverkefni þar sem allir sem hafa áhuga á landbúnaði, náttúruvernd og sjálfbærri landnýtingu geta lagt sitt af mörkum til að bæta ástand landsins.

Hver getur tekið þátt í Landvöktun?

Verkefnið er opið öllum! Hvort sem þú ert landeigandi, bóndi, náttúruverndarsinni eða bara einstaklingur sem vill læra meira um landið sitt, þá getur þú tekið þátt í því. Með einfaldri aðkomu og nýtingu snjalltækni getur þú fylgst með landinu þínu og tekið þátt í því að bæta ástand þess.

Er eitthvað sem þú vilt vita meira um?

Við hvetjum þig til að skoða Landvöktun og ganga til samstarfs við GróLind. Á vef okkar,www.grolind.is/landvoktun, getur þú fengið allar upplýsingar um hvernig þú getur tekið þátt í verkefninu, auk þess sem við bjóðum upp á aðstoð ef þú hefur einhverjar spurningar. Við viljum fjölga þátttakendum og bjóðum ykkur innilega velkomin í þann kröftuga hóp sem tekur þátt nú þegar.

Jóhann Helgi Stefánsson,
sérfræðingur hjá Landi og skógi

Fleiri fréttir