Hugleiðing á jólaföstu
Nú nálgast hátíðirnar og það stendur einhvers staðar að öll dýrin í skóginum eigi þá að vera góð hvert við annað. Höfum þá í huga, að góð framkoma og kurteisi við alla eru eiginleikar, sem setja manninn framar dýrunum. Það þykir sjálfsagt að þiggja tillitssemi, en það er því miður ekki alltaf svo ef að á að veita hana. Það er ætíð þess virði að hafa gullnu regluna í huga um að gera öðrum það, sem maður vill njóta sjálfur.
Það, sem ég vil hér kalla kurteisi sem samnefnara, er ræktun ákveðinna venja/gilda/reglna, sem menn hafa komið sér saman um að séu mikilvægar fyrir þá sjálfa og samfélagið. Þannig er kurteisi og góð framkoma milli manna og hópa undirstaða menningarsamfélaga og undirstaða laga og reglna.
Venjan byrjar heimavið
Íslendingar geta verið óagaðir og heimtufrekir þegar þeir vilja og ekki virðist það batna svo mjög með árunum eða hvað? Venjur skapast fljótt á unga aldri. Höfum í huga, að það sem ungur nemur gamall temur. Það veit ekki á gott að ungdómurinn sé jafn agalaus og raun ber oft vitni. Það sést í vanvirðingu af ýmsum toga t.d. skemmdarverkum á eignum þ.m.t. veggjakroti, sem eykst stöðugt, ofbeldi eins og að ráðast á fólk og svo er átölum gjarnan mætt með stærilæti og fingurmerkjum. Þetta byrjar auðvitað heimavið í uppeldinu, þegar aðstandendur hafa ekki það, sem rétt er fyrir hinum yngri, góða siði, sem þeir viðhafa ef til vill ekki nægilega vel sjálfir. Þannig vilja þeir fullorðnu gjarnan vera þeir verstu í þessum efnum. Leiðbeiningin, siðvendnin og mannvitið sitja of oft á hakanum. Vonum samt að allir verði sem friðsælastir á jólunum.
Alþingi
Þetta þing, sem nú situr, hefur einkennst af átökum, ósamvinnufýsi, þröngsýni og fordómum stjórnvalda. Ekki hefur nefnd kurteisi þvælst fyrir mörgum þingmanninum, heldur því miður hroki og yfirlæti. Afleiðingin er, eins og víða hefur verið drepið á, að virðing Alþingis mælist nú mun lægri en nokkru sinni fyrr í sögu þess. Skal það engan undra.
Lausnirnar á vandamálum fólksins
Almenningur hefur auðvitað orðið fyrir vonbrigðum, að á nú næstum heilu kjörtímabili hafi ekki enn verið tekið á helstu baráttumálum hans, þ.e. skuldastöðu hans, atvinnumálum og lægri opinberum álögum. Hægri grænir, flokkur fólksins, kemur því fram á tímum mikilla og stórra vandamála, sem ekki skulu nefnd fleiri hér, þótt risavaxin séu og setji þjóðina í mikla hættu. Nauðsyn breyttra viðhorfa, framkomu og aðgerða er mikil, sem aldrei fyrr. Enginn hinna stjórnmálaflokkanna virðist hafa minnstu hugmynd um hvernig þeir eigi að snúa sér, þótt ekki vanti skrúðmælgina. En með ítarlegri ígrundun á verkefnunum hefur Hægri grænir lagt fram praktískar lausnir, lausnir sem ganga upp, á þessum vandamálum og þörf landsins fyrir góða kosningu hans í vor er því brýn. Ef að hann kemst ekki til nægilegra áhrifa og nær að koma stefnuskrá sinni að, þá finnst mér einsýnt að illa muni fara fyrir þjóðinni og ég ekki er viss um að skógurinn verði þá svo aðlaðandi fyrir alla, sem í honum búa. Komum því þeirri skipan á, að við gerum öðrum það, sem við viljum sjálf búa við.
Ég óska öllum gleðilegra jóla og árangursríks nýs árs.
Kjartan Örn Kjartansson
Höfundur er fyrrrv. forstjóri
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.