Áhöfnin á Arnari HU í skýjunum með ufsaveiðina
Arnar HU 1 kom til hafnar á Sauðárkróki nú fyrir helgi með 617 tonna afla sem á áætlað er að sé um 380 milljónir króna að verðmæti. Um 290 tonn af aflanum er ufsi. „Túrinn fór vel af stað, það var eiginlega mokveiði af ufsa frá fyrsta degi,” sagði Viktoría Ósk Jóhannesdóttir, annar stýrimaður á Arnari HU 1 í samtali við tíðindakonu FISK Seafood.
Fram kemur í fréttinni að áhöfnin á Arnari HU sé í skýjunum með ufsaveiðina í þessari veiðiferð, enda hafi lítið fengist af ufsa síðustu misseri og mikið fagnaðarefni að hann sé farinn að veiðast aftur.
„Við hófum veiðar fyrir vestan en héldum svo suður á Fjöllin, þar var hellingur af ufsa, en þó ekki alveg gefins svo að nálarnar fengu að vinna. Þaðan héldum við á Halann í nokkra daga áður en við fikruðum okkur austur á Grunninn. Veðrið var svona upp og ofan, en það gerði ekkert til því það var nóg að gera allan túrinn,” sagði Viktoría sem bætti við að hún og bátsmaðurinn hafi verið sérstaklega glöð með að fá tækifæri til þess að æfa áhöfnina í heild í netavinnunni, þar með talið vélstjórana.
