Takk fyrir stuðninginn – konur í framvarðasveit
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í NV-kjördæmi er að baki og fyrir liggur að sérlega sterkur listi mun bjóða fram undir bókstafnum D í kosningunum 25. apríl. Ég er mjög sátt við minn hlut og afar þakklát þeim fjölda fólks sem studdi mig vítt og breytt um kjördæmið. Þátttakan í prófkjörinu sló líka öll met en hátt i 80% flokksfélaga nýtti atkvæðisréttinn sinn. Það er kröftugur upptaktur fyrir kosningabaráttuna framundan.
Ljóst var strax í byrjun baráttunnar að slagurinn um efsta sætið yrði milli Einar Kristins Guðfinnssonar og Ásbjarnar Óttarsonar. Samkeppnin um næstu sæti var óljósari og gat farið á marga vegu enda margir og frambærilegir einstaklingar um hituna. Niðurstaðan varð hinsvegar sú að tvær konur, Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir og ég, náðum þriðja og fjórða sætinu. Þetta er söguleg niðurstaða. Sjálfstæðismenn í kjördæminu okkar sýndu það svo ekki verður um villst að þeir vilja konur í framvarðasveit sína á Alþingi og þurfti hvorki kynjakvóta eða fléttulista til. Niðurstaða prófkjörsins sýnir einnig vilja sjálfstæðismanna til endurnýjunar án þess þó að kasta reynslu og þekkingu fyrir róða.
Um leið og ég þakka meðframbjóðendum mínum drengilega og málefnalega baráttu hvet ég sjálfstæðismenn um allt kjördæmi til að leggja alla sína krafta til þess að flokkurinn nái glæsilegri kosningu í vor. Það er til mikils að vinna.
Birna Lárusdóttir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.