Skyldi markaðsdeildin vita af þessu ?

Myndinni er all svakalega stolið af kaffistofu Pressunnar við vitum ekki hvaðan þeir stálu henni. Miklar umræður hafa verið um ummæli forseta Íslands þar sem hann tilkynnti heimsbyggðinni að hún hefði nú ekki séð neitt enn þá. Katla væri eftir.
Í kjörfar þeirra umræðna útbjuggu gárungarnir hamfarakort sem að sjálfsögðu væri stranglega bannað útlendingum. Feykir komst yfir kortið eftir krókaleiðum en kortið sýnir svart á hvítu óumdeilanlega kosti þess að búa á Norðurlandi vestra. Skyldi markaðsdeild SSNV vita af þessu?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir