10 – 1 sigur í æfingarleik
Strákarnir í Tindastól/Hvöt fóru mikinn í æfingarleik við Skallagrím sem fram fór í Akraneshöllinni sl. föstudagskvöld en strákarnir okkar gerðu sér lítið fyrir og sigruðu leikinn 10 – 1.
Byrjunarlið Tindastóls/Hvatar: Óli Grétar stóð í markinu, Ingvi Hrannar, Arnar Skúli, Sveinbjörn, Hallgrímur, Donni, Alli, Atli, Arnar Sig, Óskar Vignis og Kolbeinn. Alli fór útaf eftir stuttan leik og kom Stinni inn fyrir hann. Árni Einar komi inn fyrir Atla undir lok leiksins, en Atli lék kvöldið áður með 2.fl. við KA.
Eins og tölurnar gefa til kynna var mikill munur á liðunum. Tindastóll/Hvöt var nokkuð lengi í gang en þegar fyrsta markið kom var eins og þetta hrykki í gang. Tindastóll/Hvöt notaði sín færi vel og Kolbeinn skoraði alls 4 mörk.
Markaskorarar voru: Kolbeinn 4, Atli 2, Donni 1, Arnar Sig 1, Óskar 1 og Ingvi Hrannar 1.