Sex réttir með sérvöldum vínum á Sauðá

Sóley Björk vínfræðingur mætir á Sauðá. MYNDIR AÐSENDAR
Sóley Björk vínfræðingur mætir á Sauðá. MYNDIR AÐSENDAR
Vínfræðingurinn Sóley Björk Guðmundsdóttir og veitingahúsið Sauðá ætla að slá upp vín- og matarveislu laugardaginn 14. nóvember nk. Þar ætla þau að para saman sælkerarétti úr úrvalseldhúsinu á Sauðá og sérvalin handverksvín frá Katalóníu á Spáni.

„Ég er mjög spennt fyrir vínunum í ár. Ég smakka vel á annað þúsund vín á ári og þessi 6 sem ég hef valið fyrir viðburðinn eru öll vín sem ég held mikið upp á. Það mætti kalla þetta beint frá býli, ég hef heimsótt öll vínhúsin og þekki alla vínbændurna persónulega.

Vínin eru hver með sinn karakter, enda Katalónía langtum fjölbreyttasta vínframleiðsluhérað Spánar. Ég er mjög spennt fyrir samstarfinu við Sauðá, maturinn hjá Jóni er alltaf upp á 10 og góð pörun gerir allt betra. Bæði verður matur inn betri með réttu víni og vínið verður betra með réttum mat!”

Nýlokið framhaldsnámi í vínfræðum

Ástæðan fyrir gríðarlegum fjölda vína sem Sóley hefur bragðað á í ár er ekki bara vegna starfs hennar sem vínfræðingur, heldur var það hluti af prófaundirbúningi. “Ég er rétt að lenda eftir lokaprófatörnina í vínfræðum í London,” segir Sóley. Prófin sem hún vísar til eru til hæstu gráðu Wine and Spirit Education Trust, sem aðeins einn íslendingur hefur lokið áður.

„Lokaprófið var ansi stíft, þetta voru tveir dagar. Fyrr dagurinn fór í að greina 12 vín héðan og þaðan úr heiminum, finna út úr því hvaðan þau koma, hvaða tegund af þrúgu (vínberjum) var notuð, hvernig vínið var unnið og svo framvegis. Hinn dagurinn var svo skriflegt próf. Þetta var mikið af smáatriðum sem þurfti að leggja á minnið svo ég er vel að vopnum búin til að svara öllum spurningum í smökkuninni. Hvort sem þær kunna að snúast um vínið í glasinu fyrir framan gesti eða um hvaða jarðveg er að finna í afskekktum vínhéruðum á Nýja Sjálandi,” segir Sóley og hlær.

Veislan kostar 19.900 með mat og víni. Til að taka frá sæti þarf að senda póst á soley@barselona.is með nafni og fjölda eða hafa samband við Sauðá!

Fleiri fréttir