Magnús sveitarstjóri með fasta viðtalstíma

Magnús Barðdal Reynisson sveitarstjóri Skagafjarðar. MYND AÐSEND
Magnús Barðdal Reynisson sveitarstjóri Skagafjarðar. MYND AÐSEND

Magnús Barðdal sveitarstjóri verður með fasta viðtalstíma í Skagafirði annan hvern föstudag, ýmist í Varmahlíð, á Hofsósi og Sauðárkróki frá og með 6. nóvember. Í frétt á vef Skagafjarðar segir að þeir sem áhuga hafi séu hvattir til að nýta sér þennan möguleika og eiga gott spjall við Magnús um þjónustu og málefni sveitarfélagsins og koma á framfæri ábendingum eða ræða einstök mál.

Bóka þarf viðtal fyrir fram í gegnum rafrænt bókunarkerfi sveitarfélagsins á skagafjordur.is. Hægt er að velja stað og tímasetningu í kerfinu. Gert er ráð fyrir 30 mínútna viðtölum og við bókun er óskað eftir stuttri lýsingu á erindinu svo sveitarstjóri geti undirbúið sig eftir því sem við á.

Hægt er að bóka viðtalstíma hjá sveitarstjóra hér.

Fleiri fréttir