180 þúsund krónur söfnuðust í ágóðaleik
Tindastóll og Þór frá Akureyri áttust við í æfingaleik í gærkvöldi. Leikurinn var líka ágóðaleikur fyrir Ingva Guðmundsson og fjölskyldu, en Ingvi heldur senn í mergskipti til Svíþjóðar. Alls söfnuðust 180.104 krónur.
Fjöldi fólks lagði leið sína í Síkið í gærkvöldi til að fylgjast með leiknum og til að leggja góðu málefni lið. Tindastóll sigraði með 86 stigum gegn 60 stigum Þórsara í nokkuð sveiflukenndum leik en leiknir voru 5 leikhlutar.
Í lið Tindastóls vantaði bandaríkjamanninn Michael Fratangelo, en hann er meiddur og óvíst um framtíð hans hjá félaginu á þessari stundu.
Eins og áður sagði söfnuðust um 180 þúsund krónur á leiknum í gær og rennur sú upphæð óskipt til Ingva og fjölskyldu og er það körfuboltahreyfingunni á staðnum sérstök ánægja að geta lagt hönd á plóginn.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.