2,4 milljarða hagnaður hjá KS
Aðalfundur Kaupfélags Skagfirðinga var haldinn s.l. laugardag á Sauðárkróki. Hagnaður var af rekstri samstæðunnar á síðasta ári sem nam rúmum 2,4 milljörðum króna en velta samstæðunnar fór úr 21,8 milljarði í 25,7 milljarða. Veltufé frá rekstri nam tæpum 3,5 milljörðum sem er um 400 milljónum meira en árið á undan. Fram kom á fundinum að áhersla hafi verið lögð á það síðasta árið að lækka skuldir samstæðunnar og lækkuðu þær um 5 milljarða á árinu. Meðalfjöldi starfsmanna samstæðunnar var 727 starfsmenn á síðasta ári.
Fram kom á fundinum að sú óvissa sem uppi er um framtíðarfyrirkomulag sjávarútvegs á Íslandi virkar verulega neikvætt á starfsemi félagsins og hamlar allri þróun hjá þeim hluta samstæðunnar. Mjólkurframleiðsla og úrvinnsla hélt áfram að styrkjast á síðasta ári í héraðinu og útflutningur á dilkakjöti hefur aldrei verið eins áhugaverður og um þessar mundir. Því má ætla að sé rétt á spilum haldið muni Skagafjörður geta styrkt sig enn frekar sem öflugt framleiðsluhérað í matvælaframleiðslu.