3. flokkur kvenna á ferðinni

Stelpurnar í 3. flokki í Tindastóli spiluðu tvo æfingaleiki fyrir sunnan um helgina. Í leiknum á móti KR á laugardaginn voru okkar stelpur mun betri en mótherjinn og sigruðu sannfærandi 2 - 0. Sá sigur hefði getað orðið stærri en nokkur góð færi fóru forgörðum.

Í leiknum á móti Breiðablik á sunnudag mættu okkar stelpur frábæru liði. En úr varð hörku leikur sem Blikastelpur unnu að lokum 3-1. Blikastelpurnar komust í 2-0 í byrjun seinni hálfleiks en okkar stelpur minnkuðu muninn í 2-1 15 mín fyrir leikslok. Blikarnir settu svo síðasta markið á síðustu mínútu leiksins og niðurstaðan tap 1-3.

Það voru 21 stelpur sem fóru suður og allar spiluðu í báðum leikjunum. Það er því ljóst að í 3. flokki er að myndast stór og breiður hópur af góðum fótboltastelpum.

/Tindastóll

Fleiri fréttir