Sláturtíð komin á gott skrið

Frá Kjötafurðastöð KS á Sauðárkróki.
Frá Kjötafurðastöð KS á Sauðárkróki.

Mikið er um að vera hjá Kjötafurðastöð KS um þessar mundir en þrjár vikur eru liðnar af sláturtíð. Búið er að slátra 37 þúsund fjár en fyrstu tvær vikurnar var rúmlega 21.500 fjár slátrað.

Samkvæmt heimasíðu Kaupfélags Skagfirðinga er meðalþyngd 16,44 kg en meðaleinkunn fyrir gerð 9,11 og 6,63 fyrir fitu.

 

 

Fleiri fréttir