Guðni Th. kynnir nýja bók sína á Héraðsskjalasafni Skagfirðinga
Aufúsugestur mætir á Héraðsskjalasafn Skagfirðinga fimmtudaginn 29. október en það er fyrrverandi forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson. Þar mun hann kynna nýútkomna bók sína, Vald hinna veiku, þar sem hann rekur sögu Landhelgismálsins 1971-1974. Kynningin hefst kl. 17 og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Bók Guðna er umfangsmikið sagnfræðirit um eitt dramatískasta tímabil íslenskrar samtímasögu: baráttuna fyrir útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 50 sjómílur. Það sem gerir bókina sérstaklega áhugaverða er að Guðni leitast við að endurskoða hina hefðbundnu frásögn af þorskastríðunum sem sögu um samhenta þjóð sem stóð sameinuð gegn erlendu ofurefli.
Hann dregur fram mun flóknari veruleika: pólitísk átök, persónulegan ágreining, baktjaldamakk, diplómatískar málamiðlanir og stundum hættulega óvissu um hvernig atburðirnir myndu þróas
