6 silfur og 4 brons á MÍ 15-22 ára
Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum, fyrir 15-22 ára, fór fram í Laugardalshöllinni í Reykjavík helgina 29.-30. janúar. Frá UMSS voru 8 keppendur á mótinu og unnu þeir til 10 verðlauna, 6 silfurverðlauna og 4 bronsverðlauna.
Jóhann Björn Sigurbjörnsson (16-17) varð í 2. sæti í 60m og 200m hlaupum.
Halldór Örn Kristjánsson (20-22) varð í 2. sæti í 60m grindahlaupi og 3. sæti í langstökki.
Þorsteinn Jónsson (18-19) varð í 2. sæti í þrístökki og 3. sæti í langstökki.
Árni Rúnar Hrólfsson (20-22) varð í 2. sæti í 800m hlaupi.
Sveit UMSS (18-19) varð í 2. sæti í 4x200m boðhlaupi. (Guðjón, Þorsteinn, Brynjólfur og Jóhann).
Brynjólfur Birkir Þrastarson (15) varð í 3. sæti í 800m hlaupi.
Guðjón Ingimundarson (18-19) varð í 3. sæti í 60m grindahlaupi.