60 dagar í jól og undirbúningurinn hefst!

Jólin eru uppáhalds árstími Fröken Fabjúlöss og byrjar fjörið oft snemma á þeim bænum! Fröken Fabjúlöss hefur verið að halda aftur af sér með jólapistlana en rétt í þessu hnaut hún um svo skemmtilega hugmynd að hún bara varð að deila henni með fjöldanum- Jóladagatöl úr eldspýtustokkum!!! Þetta er eitthvað sem hægt er að dundast við að hnoða saman allann nóvembermánuð og þarf að vera reddý steddý 1. desember og þessvegna ekki úr vegi að byrja undirbúning!

Hægt er að útfæra þetta á ótrúlega fjölbreyttann hátt! Vefja jólapappír utan um stokkana, klippa út gömul jólakort og líma á þá, númera þá með allskonar útfærslum og setja allskonar glimmer og slauferí á þá. Einnig er hægt að smella þeim öllum í skál sem svo er dregið úr á hverjum morgni, eða festa þá með kennaratyggjói eða frönskum rennilás á vegg eða spjald, raða þeim upp í munstur eins og t.d jólatré eða eftir röð, hengja þá á band sem svo er strekkt á vegg og svo framvegis.... Fegurðin við þetta nostur er að útfærsla á hugmyndinni fer algjörlega eftir hverjum og einum!

Svo þegar kemur að því að fylla í eldspítustokkana er aftur kominn tími á hugmyndaflugið! Hægt er að setja alls kyns smádót (sem þarf þó að vera nógu lítið til að passa í eldspýtustokk), súkkulaðistykki eða annað nammi eða þá setja miða í hvern stokk með ákveðnu atriði sem krakkarnir geta svo gert yfir daginn annaðhvort einir og sér eða með afgangnum af fjölskyldunni! Þetta getur verið ótrúlega skemmtilegt og listann getur fjölskyldan jafnvel búið til í sameiningu. Hér fyrir neðan má sjá lista sem Frk. Fab bæði fann á netinu og bætti sjálf inní yfir hluti sem hægt er að setja í dagatalið:

1. Skrifa bréf til jólasveinsins
2. Naglalakka táneglurnar á allri fjölskyldunni
3. Búa til snjókorn úr pappír og skreyta húsið með þeim
4. Hafa jólakvikmyndakvöld
5. Fara í göngutúr eftir að dimmir (með mömmu og/eða pabba) og skoða stjörnurnar
6. Búa til heitt kakó með rjóma og súkkulaðispænum
7. Velja brúður til að leika söguna sem er lesin áður en farið er að sofa
8. Útbúa jólaskraut á jólatréið úr kartoni
9. Útbúa lagalista með uppáhalds jólalögunum og dansa og syngja með 
10. Gera brjálæðislegar hárgreiðslur í alla fjölskyldumeðlimi
11. Mála á piparkökur
12. Fara út og renna sér á snjóþotu með pabba og mömmu (plan B ef það er ekki snjór: gera heitt kakó og baka pönnsur)
13. Baka uppáhalds smákökurnar
14. Skrifa lista yfir allt sem þú ert þakklát/ur fyrir, skreyta hann fallega og hengja á ísskápinn
15. Gera heimatilbúna jólagjöf handa mömmu og pabba/ömmu og afa
16. Borða morgunmat í kvöldmat (cheerios, pönnukökur, egg og beikon og svo frv)
17. Skrifa jólakort til fjölskyldumeðlima og svo bestu vina 
18. Fara í göngutúr og dást að fallegu jólaskreytingum nágrannanna 
19. Lesa/fá mömmu eða pabba til að lesa jólasögu
20. Spila skemmtilegt spil með fjölskyldunni
21. Borða uppáhaldsísinn í eftirmat eftir kvöldmatinn
22. Pakka inn leikfangi og gefa gjöfina í rauða krossinn eða aðra góðgerðarstarfsemi
23. Setja kerti í skóinn í kvöld sem gjöf handa Kertasníki
24. GLEÐILEG JÓL!!! Vekja mömmu og/eða pabba með knúsi og kossum (í þennann stokk má bæta við einhverju góðgæti svona fyrst jólin eru komin :)

Nú er bara að setjast niður með föndurdótið og hugmyndaflugið að vopni!! Fröken Fabjúlöss hefur safnað saman nokkrum myndum sem geta gefið hugmyndir og innblástur!

Góða skemmtun!

Fleiri fréttir