7. flokkur stúlkna í úrslitum Íslandsmótsins
Þrír af yngri flokkum Tindastóls í körfuknattleik munu keppa um helgina. Stúlknaflokkur keppir í C-riðli á Akranesi, 7. flokkur stúlkna í A-riðli í Keflavík og 9. flokkur drengja í B-riðli hér heima.
7. flokkur stúlkna keppir í A-riðli í Keflavík en mótið er jafnframt úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn, þar sem það lið sem hlýtur flest stig í síðasta mótinu verður Íslandsmeistari. Okkar stelpur hafa staðið sig vel í allan vetur og ætla sér að gera gott mót.
Stúlknaflokksmótið átti að vera um síðustu helgi en var frestað. Stelpurnar eru í riðli með Skagastúlkum og KFÍ og verður leikin tvöföld umferð, tveir leikir á laugardag og tveir á sunnudag.
9. flokkurinn keppir í B-riðli hér heima um helgina en þeir urðu á dögunum bikarmeistarar í þessum flokki. Fyrir þá sem hafa áhuga á að berja strákana augum þá spila þeir við Skallagrím kl. 11.15 á laugardag og Breiðablik kl. 15.00. Á sunnudag eiga þeir Fjölni kl. 10.15 og lokaleikurinn verður við Njarðvík kl. 14.00.
Tindastoll.is