80 ár síðan skólastarf hófst að Reykjum

Þann 28. ágúst nk. verður þess minnst með sérstakri afmælisdagskrá á Reykjaskóla að í ár eru 80 ár liðin frá upphafi skólastarfs að Reykjum í Hrútafirði. Héraðsskólinn að Reykjum tók til starfa árið 1931 og starfaði til ársins 1988 að undanskyldum árum síðari heimstyrjaldarinnar þegar húsnæði skólans var nýtt af setuliðinu.

Allt frá stofnun héraðsskólans hafa Reykir í Hrútafirði verið mennta- og menningarsetur Húnvetninga og var skólinn ávallt vel sóttur af nemendum víða að af landinu en flestir nemendur hans komu úr Húnavatnssýslum og Strandasýslu.

Eftir að starf héraðsskólans lagðist af rak Staðarhreppur skólabúðir í Reykjaskóla til ársins 1998 þegar Húnaþing vestra tók yfir reksturinn í kjölfar sameiningar sveitarfélaga í Vestur-Húnavatnssýslu. Frá árinu 2001 hafa Skólabúðirnar í Reykjaskóla verið reknar skv. sérstöku samkomulagi milli Sambands íslenskra sveitarfélaga, Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og Húnaþings vestra. Um 3000 nemendur grunnskóla víða að af landinu sækja Skólabúðirnar í Reykjaskóla heim á ári hverju.

Dagskrá afmælishátíðarinnar er öllum opin og eru fyrrverandi starfsmenn, nemendur, íbúar nærliggjandi sveitarfélaga og aðrir velunnarar skólans boðnir velkomnir.

Dagskrá afmælishátíðar á Reykjaskóla þann 28. ágúst 2011 er eftirfarandi.

Kl. 13:00 -17:00         Opið hús í Reykjaskóla. Allar byggingar skólans eru opnar gestum afmælishátíðar.

Kl. 14:00 – 15:00        Hátíðardagskrá í Bjarnaborg, ávörp og tónlistarflutningur.

Kl. 15:00 – 17:00        Kaffiveitingar í matsal skólans kl. 15.00 - 17.00.

Kl. 16:30 – 17:00        Bjarni Aðalsteinsson, fyrrverandi skólastjóri flytur ágrip af sögu Reykjaskóla í íþróttasal.

Í tilefni afmælishátíðar verður Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna að Reykjum í Hrútafirði opið fyrir gesti frá kl. 10:00-18:00. Frír aðgangur er að safninu þennan dag.

Fleiri fréttir