Starfsfólk Ráðhússins tekið til starfa í Félagsheimili Hvammstanga

Félagsheimilið Hvammstanga hýsir nú starfsemi Ráðhúss Húnaþings vestra. MYND AF HÚNAÞING.iS
Félagsheimilið Hvammstanga hýsir nú starfsemi Ráðhúss Húnaþings vestra. MYND AF HÚNAÞING.iS

Líkt og komið hefur fram í Feyki þá var nýlega ákveðið að flytja starfsemi Ráðhúss Húnaþings vestra tímabundið í Félagsheimilið Hvammstanga þar sem loftgæði í húsinu töldust óviðunandi. Starfsemi Ráðhúss hefur nú þegar opnað á neðri hæð í neðri hæð. Gengið er inn um vestur inngang (Samstöðugangurinn).

Fram kemur í tilkynningu á vef Húnaþings vestra að pnunartími er sá sami og verið hefur eða mánudaga til fimmtudaga kl. 10:00-14:00 og föstudaga kl. 10:00-12:00 Vakin er athygli á því að hægt er að bóka tíma hjá starfsmönnum Ráðhússins hér. Símanúmer er óbreytt - 455-2400.

Fleiri fréttir