9. flokkur í undanúrslitum bikarsins í Síknu í kvöld

Strákarnir í 9. flokki Tindastóls í körfubolta spila í undanúrslitum bikarkeppninnar hér heima í kvöld og hefst leikurinn klukkan 19:30 Meistaraflokkslið Tindastóls og Þórs Akureyri, spila æfingaleik í Síkinu eftir leikinn eða um kl. 21.00. Þá heldur drengjaflokkurinn suður yfir heiðar og spilar sína síðustu útileiki í vetur. Nú er um að gera að styðja strákana og mæta í Síkið og arga áfram Tindastóll sem aldrei fyrr.

9. flokkur drengja spilar í undanúrslitum bikarkeppni KKÍ á föstudaginn kl. 19.30 í Síkinu. Mótherjar þeirra eru Grindvíkingar. Strákarnir hafa tvisvar sinnum keppt við Grindvíkinga í Íslandsmótinu í vetur og tapað báðum leikjunum. En með heimavöllinn og góðum stuðningi áhorfenda, eiga þeir sannarlega möguleika á að komast í úrslitaleikinn.

Hlé er á IEX-deildinni þessa dagana vegna bikarúrslitaleikja um helgina. Það hlé ætla Tindastólsmenn að nota vel og taka á móti Akureyringum í æfingaleik og verður hann um kl. 21.00 á föstudaginn, eða strax eftir bikarleikinn hjá 9. flokki. Það er gaman að segja frá því að Dimitar Petrushev, sem lék með Tindastóli í upphafi tímabilsins, er nú leikmaður Þórs, gerði samning við þá á dögunum um að leika með þeim út keppnistímabilið. Var kappinn m.a. stigahæstur þeirra í leik gegn Ármenningum um daginn.

Drengjaflokkurinn spilar sína síðustu útileiki um helgina. Þá heimsækja þeir Reykjanesbæ, spila við Njarðvík kl. 12.30 á laugardag og Keflavík kl. 13 á sunnudag. Strákarnir eiga svo einn heimaleik eftir, en hann er gegn Þór Akureyri þriðjudaginn 8. mars kl. 20.00.

Körfuboltaskólinn fellur niður um helgina, þar sem Borce verður í burtu með drengjaflokksstrákunum.

Fleiri fréttir