Á slóðir Haugsnesbardaga
Félagið á Sturlungaslóð í Skagafirði verður með létta göngu á slóðir Haugsnesbardaga laugardaginn 25. júní kl 10 árdegis. Leiðsögumaður verður Sigurður Hansen og er mæting í Kringlumýri í Blönduhlíð. Þar mun Sigurður segja frá aðdraganda bardagans og rölta með þátttakendum að „grjóthernum“ einu stærsta útilistaverki landsins sem hann hefur komið fyrir á áreyrunum neðan við Haugsnesið. Síðan liggur leiðin að róðukrossinum við Syðstu-Grund þar sem foringi Ásbirninga, Brandur Kolbeinsson á Reynistað, var tekinn af lífi. Þátttökugjald er 500 kr fyrir 14 ára og eldri.
Félagið fékk Veraldarvini í heimsókn til sín um hvítasunnuna og var unnið að göngustígagerð. Merkt var gönguleið frá Vindheimamelum að Reykjafossi og Fosslaug. Farið er eftir Melunum að vestanverðu að hliði sem er sunnan við mótssvæðið. Þaðan er gengið eftir veginum að merktum slóða sem liggur að fossinum og áfram að lauginni. Laugin er sýnishorn af miðaldalaugum sem forfeður okkar notuðu til baðferða og einnig sem fundastaði. Einnig var merkt gönguleið að grjóthernum. Keyrt er upp afleggjarann að Djúpadal og Kringlumýri að litlu bílaplani og þaðan er gengið eftir varðaðri leið að hernum. Slóði liggur frá grjóthernum að róðukrossinum ofan við Syðstu-Grund.
Það er von félagsins að með bættu aðgegni að merkum sögustöðum Sturlungaaldar aukist áhugi heimamanna og ferðafólks á þeim miklu menningarverðmætum sem við eigum hér í Skagafirði frá miðöldum.
Sögudagur félagsins verður 20. ágúst. Þar verður fjölbreytt dagskrá þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Dagskráin verður auglýst þegar nær dregur.