Matheus Gotler framlengir við lið Tindastóls

Gotler og Konni þjálfari. MYND AF SÍÐU KKD TINDASTÓLS
Gotler og Konni þjálfari. MYND AF SÍÐU KKD TINDASTÓLS

Það gleður okkur að kynna að hann Matheus Gotler hefur skrifað undir nýjan samning við Tindastól. Matheus Gotler kom til okkar fyrir síðasta tímabil og spilaði 18 leiki í deildinni og skoraði 13 mörk. Á lokahófi Mfl. Tindastóls var hann valinn besti leikmaður meistaraflokks karla.

Gotler hefur spilað 101 leik á Íslandi en hann var fyrst með liði Hattar/Hugins tímabilin 2022 og 2023, skipti síðan yfir í KFA sumarið 2024. Hann lék með Kormáki/Hvöt tímabilið 2025 en skipti svo yfir til Stólanna. Þrettán mörk er það langmesta sem hann hefur skorað á einu tímabili og má því segja að hann hafi blómstrað á Króknum.

Fleiri fréttir