„Að minnsta kosti er ég óvenju rólegur,“ segir Palli Kolbeins
Feykir fékk Pál Kolbeinsson til að tjá sig um einvígi Tindastóls og KR en líkt og Björgvin og Gústi hefur Palli spilað með báðum liðunum. Palli er hins vegar alinn upp í Vesturbænum og nánast í KR-gallanum. Hann hefur einnig þjálfað bæði liðin og líkt og margir aðrir þá spáir Palli því að rimman endi í fimm leikjum.
Hvernig líst þér á viðureign KR og Tindastóls um Íslandsmeistaratitilinn? -Þetta verður mjög spennandi eins og leikirnir þegar þessi lið hafa mæst í vetur. Gaman að sjá liðin mín mætast.
Hvernig hefur þér litist á lið Tindastóls í vetur? -Þetta er skemmtilega blanda af eldri og yngri leikmönnum. Liðið er vel skipulagt og varnarleikurinn góður sem er mér að skapi. Vörnin vinnur titla.
Hvað hefur komið þér mest á óvart? -Hvaða yngri leikmennirnir hafa sýnt mikinn stöðuleika og síðan hefur góð stjórnun á bekknum þýtt það að eldri leikmennirnir hafa nýst frábærlega.
Hvernig spáir þú að einvígið fari? -Ég ætla leyfa mér að spá því að viðureignin fari í fimm leiki. Ef Pavel nær sér strik þá vinnur KR-liðið. Annars erum KR-ingar alveg rólegir, höfum hampað Íslandsmeistaratitlinum fjórum sinnum á síðustu sjö árum. Að minnsta kosti er ég óvenju rólegur og ætla að njóta þess að mæta á leikina – þetta verður góð skemmtun!
Einmitt. Feykir trúir því rétt mátulega að Palli Kolbeins sé rólegur!?