Aðalfundur Kaupfélags Skagfirðinga 18. apríl
Aðalfundur Kaupfélags Skagfirðinga verður haldinn laugardaginn 18. apríl 2015 kl. 10:00 í Selinu á Sauðárkróki. Dagskrá fundarins er samkvæmt samþykktum félagsins, eins og segir í auglýsingu frá stjórn.
Í 73. tölublaði KS tíðinda, sem út kom í síðasta mánuði, er getið um ýmsar fréttir í starfi Kaupfélagsins undanfarin misseri. Þar segir m.a. frá því að tekinn hafi verið í notkun nýr þjónustubíll hjá Bílaverkstæði KS sem er vel tækjum búinn og fær í flestar viðgerðir. Bíllinn var til sýnis á Sveitasælu sl. sumar og hefur fengið góðar viðtökur.
Þá segir frá kaupum KS á Sláturhúsinu á Hellu og Kjötbankanum í Hafnarfirði en Kjötbankinn er kjötvinnslufyrirtæki sem var í meirihlutaeigu Sláturhússins á Hellu. „Er þetta liður í að efla enn frekar matvælavinnslu félagsins og styrkja stöðu þess sem eitt af leiðandi fyrirtækum í matvælaframleiðslu á Íslandi,“ segir í nýjasta tölublaði KS tíðinda.