Friðarganga Árskóla næstkomandi föstudag
Árleg friðarganga Árskóla verður föstudaginn 27. nóvember. Nemendur og starfsfólk leggja af stað frá skólanum kl. 8:30 og ganga að Sauðárkrókskirkju. Þaðan liggur leiðin upp kirkjustíg að ljósakrossinum þar sem kveikt verður á honum.
Að því loknu verður gengið aftur að skólanum. Þar verður boðið upp á heitt kakó og piparkökur á skólalóðinni.
