Aðstaða fyrir blaðamenn á Sauðárkróksvelli

Knattspyrnudeild Ungmennafélagsins Tindastóls lagði fyrir skömmu fram erindi á byggðarráðsfundi Svf. Skaagfjarðar þar sem fram kemur að deildin hefur hug á að reisa aðstöðu fyrir blaðamenn á íþróttavellinum á Sauðárkróki á eigin kostnað.  Meistaraflokkur karla leikur í 1. deild á komandi tímabili og er búist við töluverðri umfjöllun þess vegna.

Byggðarráðið samþykkti fyrir sitt leiti að aðstaðan verði byggð á kostnað Ungmennafélagsins Tindastóls, en erindið á eftir að fara fyrir skipulags- og byggingarnefnd og til umsagnar umsjónarmanns íþróttamannvirkja.

Fleiri fréttir