Aðventustund í Víðidalstungukirkju
Aðventustund verður í Víðidalstungukirkju næstkomandi föstudagskvöld, þann 2. desember kl. 20:30. Þar verður sálin undirbúin undir komu jólanna með samveru í kirkjunni.
Á Norðanátt.is segir að fjölbreytt dagskrá verður í boði en ræðumaður kvöldins verður Ína Björk Ársælsdóttir umhverfisstjóri og stjórnandi kirkjukórs Elínborg Sigurgeirsdóttir.
Allir eru boðnir velkomnir og boðið verður upp á kaffiveitingar að kirkjustund lokinni.